Mylluvísjón 2017
Mylluvísjón verður haldin á morgun, 2. mars, í Myllubakkaskóla. Keppnin er söngkeppni þar sem keppt er í tveimur flokkum, annars vegar 3. – 6. bekkur og síðan 7. – 10. bekkur. Óhætt er að segja að keppnin verði hörð þar sem keppendur hafa æft sig af kappi og eru mjög frambærilegir.
Við viljum skora á alla krakka sem ekki taka þátt í keppninni en hafa samt gaman af þessu að koma og fylgjast með!! Einnig viljum við bjóða alla foreldra sérstaklega velkomna.
Húsið opnar kl. 16.50 og keppnin hefst svo stundvíslega kl. 17.00. Keppnislok eru um kl. 19.00.
Það kostar ekkert inn og það er sjoppa á staðnum!
Mætum öll og myndum öflugt klapplið til að hvetja áfram þá nemendur sem sýna það hugrekki að stíga á svið!!!
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.