Mylluvísjón 2015
Fimmtudaginn 12. febrúar næstkomandi ætlum við að halda Mylluvísjón í Myllubakkaskóla. Mylluvísjón er söngkeppni milli nemenda skólans. Allir nemendur í 3. – 10. bekk geta skráð sig til keppni. Hægt er að syngja einn eða fleiri saman, þó aldrei fleiri en fjórir. Skráning er hjá Írisi kennara. Skráningar sendast í tölvupósti á netfangið iris.halldorsdottir@myllubakkaskoli.is .
Einnig er hægt að hitta á Írisi í skólanum og skrá sig. Þeir sem ætla sér að vera með VERÐA að skrá sig fyrir þriðjudagskvöld 10. febrúar (þriðjudagur er síðasti skráningardagur). Í skráningarpósti skal koma fram nafn, bekkur og lag. Mikilvægt er að þið séuð búin að velja lag þegar þið skráið ykkur. Undirspilið verður að vera karaoke, þ.e.a.s. það má ekki heyrast í söng í undirspilinu. Það má líka syngja án undirspils eða með “live” undirspil.
Við vonumst til að sem flestir taki þátt. Þetta er ótrúlega skemmtilegt.
Myllubakkakveðja ☺
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.