Mylluvísjón 2014
Mylluvísjón verður haldin á morgun, 8. apríl, í Myllubakkaskóla.Keppnin er söngkeppni þar sem keppt er í tveimur flokkum, annars vegar 3. - 6. bekkur og síðan 7. - 10. bekkur. Óhætt er að segja að keppnin verði hörð þar sem keppendur hafa æft sig af kappi og eru mjög frambærilegir.Við viljum skora á alla krakka sem ekki taka þátt í keppninni að koma og fylgjast með!! Einnig viljum við bjóða alla foreldra sérstaklega velkomna. Húsið opnar kl. 17:20 og keppnin hefst svo stundvíslega kl. 17:30. Keppnislok eru um kl. 19:30
Mætum öll og myndum öflugt klapplið til að hvetja áfram þá nemendur sem sýna það hugrekki að stíga á svið!!
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.