Mylluvísjón
Fimmtudaginn 2. mars verður söngkeppni Myllubakkaskóla "Mylluvísjón" haldin á sal skólans.
Keppnin er haldin árlega og er ætíð einn af hápunktum skólalífsins. Nemendur í 3. - 10. bekk geta skráð sig til keppni og er hægt að syngja einn eða með öðrum, mest þrír saman. Keppendur sjá sjálfir um að finna undirspil og koma með það á æfingu og keppni.
Skráning fyrir keppnina er hafin og henni lýkur á föstudaginn 24. febrúar. Hægt er að skrá sig hjá kennurum Írisi og Hildi Maríu eða í netfanginu iris.halldorsdottir@myllubakkaskoli.is
Vonum að sem flestir taki þátt - það gerir þetta svo skemmtileg.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.