Myllubakkaskóli 70 ára - veisla

Kæru foreldrar og forráðamenn
Á morgun er Myllubakkaskóli 70 ára. Af því tilefni þá ætla starfsmenn og nemendur að safnast saman fyrir framan Myllubakkaskóla og syngja fyrir hann afmælissönginn.
Að því loknu verður danspartý á skólalóðinni.
Afmælissöngurinn byrjar kl. 10:10 og verður danspartý til kl. 11:00.
Ef þið hafið tök á og viljið halda uppá afmælið með okkur þá eruð þið velkomin á morgun. Takið þá lagið með okkur og dansið af ykkur skóna :)
Kær kveðja
Starfsfólk Myllubakkaskóla
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.