• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

29. ágúst 2016

Menntastefna Reykjanesbæjar

Nýrri menntastefnu er ætlað að vera heildstæð áætlun um það hvernig nám á öllum skólastigum, leikur, listir og íþróttir fléttast saman og stuðlar sameiginlega að því að undirbúa unga fólkið okkar sem best undir það að vera virkir þátttakendur í samfélagi 21. aldarinnar.
Í nýrri menntastefnu er lögð áhersla á aukna þátttöku unga fólksins sjálfs, öryggi í starfi og leik, læsi í víðum skilningi og merkingarbært, fjölbreytt og skapandi nám. Með áherslur nýrrar menntastefnu að leiðarljósi munum við byggja upp réttláta, hamingjusama og sjálfbæra framtíð fyrir börnin okkar í Reykjanesbæ.

Menntastefnuna má skoða hér.

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær