• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

1. desember 2017

Margt að gerast í desember

Það verður ýmislegt um að vera í desember og má sjá það helsta hér fyrir neðan:

Þriðjudagur 5. desember
~ Sala matarmiða fyrir hátíðarmatinn byrjar í dag. Hægt er að kaupa miða á 500 krónur eða skipta út miða fyrir hátíðarmiða. Hátíðarmaturinn verður 15. des. Þeir sem eru í áskrift þurfa ekki að gera neinar ráðstafanir.

Fimmtudagur 7. desember
~ 7. SI les fyrir nemendur á Vesturbergi kl. 10:00

Föstudagur 8. desember
~ 1. bekkur, Tjarnarsel og Vesturberg hittast við jólatréð í skrúðgarðinum kl. 10:00.
~ Síðasti dagur til að kaupa matarmiða fyrir hátíðarmatinn.

Mánudagur 11. desember
~ Jólabingó 1.-3. bekkur kl. 16:30 á sal.
                    4.-7. bekkur kl. 18:00 á sal.
Hvert spjald kostar 200 kr. en þrjú spjöld kosta 500 kr. Mikilvægt að foreldrar komi með yngstu nemendunum.

Miðvikudagur 13. desember
~ Kirkjuferð hjá 1. - 4. bekk kl. 8:30.

Fimmtudagur 14. desember
~ Aðventustund á sal fyrir nemendur. 1. – 5. bekkur kl. 8:30 og 6. – 10. bekkur kl. 10:00

Föstudagur 15. desember
~ Rauður dagur. Allir að mæta í einhverju rauðu eða í jólapeysu, jólasokkum eða með jólahúfu.
~ Jólabingó á skólatíma hjá unglingastigi.
~ Hátíðarmatur í hádeginu.

Þriðjudagur 19. desember
~ Skúli Freyr foreldri spilar á gítar og syngur með nemendum.

Miðvikudagur 20. desember
~ Litlu jólin kl. 9:00-11:00. Nemendur fá kakó og piparkökur. Nemendur fá nánari upplýsingar um þennan dag frá umsjónarkennurum þegar nær dregur. Frístundaskólinn er lokaður þennan dag.


Kennsla hefst aftur samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 4. janúar.

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær