Ljóðasamkeppni unga fólksins
Ljóðasamkeppnin „Ljóð unga fólksins“ hefur verið haldin á nokkurra ára fresti frá árinu 1998 og valin ljóð hafa verið gefin út. Haustið 2012 var verkefnið kynnt á skóla- og almenningssöfnum og 920 ljóð bárust. Úrval þessara ljóða birtist í bókinni „Ljóð unga fólksins 2013“. Sigriður Eydís Gísladóttir, nemandi í 8. HE í Myllubakkaskóla, á ljóð í henni. Það heitir „Framtíðarsýn“ og er á bls. 81. Til hamingju Sigríður Eydís!
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.