• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

27. mars 2015

Litla upplestrarkeppnin

Litla upplestrarkeppnin hjá 4. ME hófst formlega 16. nóvember á degi íslenskrar tungu.  Nemendur hafa verið að æfa sig að lesa hina ýmsu texta fyrir framan aðra og  lauk verkefninu svo í gær með sérstakri lokahátíð sem fram fór á sal skólans.  Þar lásu nemendur þulur, sögur og ljóð fyrir foreldra, nemendur í 3. bekk og aðra gesti. Einnig fluttu nokkrir nemendur tónlistaratriði. Herdís Birta og Sonja Bjarney sigurvegarar úr Stóru upplestrarkeppninni lásu sitt hvort ljóðið. Foreldrum var boðið í kökur og kaffi og fengu allir þátttakendur viðurkenningarskjal.  Nemendur stóðu sig með mikilli prýði og skemmtu allir sér vel.

Flottir nemendur í 4. ME

Fleiri myndir í myndasafni

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær