Litavika
Vikuna 28. október - 1. nóvember var PBS litavika í skólanum. Þá var öllum nemendum skipt upp í 4 hópa, gulur, rauður, grænn og blár. Nemendur söfnuðu litabýtum þessa viku og var svo umbun fyrir litinn sem var með flest býti á föstudeginum. Það má með sanni segja að nemendur röðuðu til sín býtum með fyrirmyndar hegðun en blái hópurinn vann í þetta skipti og fengu þau að horfa á mynd á sal ásamt því að gæða sér á poppi og svala.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.