Kjalnesingaleikarnir
Nemendur 7. bekkjar hafa nýlokið við að lesa Kjalnesingasögu og höfðu gaman af. Af því tilefni voru haldnir leikar í líkingu við þá sem haldnir voru í Kollafirði í sögunni. Keppt var í ýmsum þrautum t.d. Búa slönguskoti, Kolfinnshlaupi á kústskafti, skothittni með býtum, spjótkasti með pappírsskutlum, stígvélasparki og orðaþraut úr sögunni.
Allir nemendur tóku þátt í leikunum og skemmtu sér vel og sagan verður þeim eflaust eftirminnilegri fyrir vikið.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.