Jólamyndir frá Svenskbacka skola í Kerava Finnlandi
Kerava í Finnlandi er einn af vinabæjum Reykjanesbæjar. Sigga Dís myndmenntakennari situr í stjórn Norræna félagsins og hefur lengi haft áhuga á að koma af stað einhverskonar samstarfi milli myndmenntakennara í einhverjum skólum vinabæjanna og fyrir jól barst henni sending frá Kerava í Finnlandi. Í stað þess að senda myndirnar milli landa var ákveðið að senda myndir í tölvupósti og síðan myndi viðtakandi prenta þær út og ganga fallega frá þeim og hengja þær upp til sýningar í viðtökuskóla. Þannig halda nemendur myndunum sínum en þurfa ekki að senda þær frá sér. Nú fljótlega sendir Sigga Dís myndir út til Kerava af völdum verkum nemenda í Myllubakkaskóla. Einnig er hún að vinna að því að koma á samstarfi við skóla í vinabæjum okkar í Svíþjóð, Danmörku og Noregi en draumurinn er að búa til hóp á Facebook eða Flickr þar sem hægt yrði að setja inn myndir og þannig deila hugmyndum af verkefnum.
Fleiri myndir má skoða í myndasafninu.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.