Jólaföndur FFM - breytt dagsetning
Hið árlega jólaföndur Foreldrafélags Myllubakkaskóla verður haldið fimmtudaginn 3.desember 2015 frá klukkan 17:00 – 19:00 á sal skólans.
Til sölu verða föndurpakkningar, gott er að hafa meðferðis skæri og pensla. Á staðnum verður málning. Ykkur er líka velkomið að koma með krukkur til að mála á.
Tíundu bekkingar verða með sölu á vörum og veitingum í fjáröflunarskyni.
F.F.M.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.