Íþróttadagur Myllubakkaskóla
Íþróttadagurinn verður haldinn föstudaginn 31. maí, Fyrirkomulagið verður með svipuðu sniði og verið hefur. Þrautir verða settar upp í kringum Myllubakkaskóla (Reykjaneshöllinni ef veður verður leiðinlegt) og nemendur reyna fyrir sér í hinum ýmsu íþróttum. Liðakeppni verður á milli stiga, keppt verður í boðhlaupi, armbeygjum og reiptogi.
Upp úr kl. 11.30 verður svo byrjað að grilla. Nemendur koma sjálfir með sér pylsur, pylsubrauð og drykk. Boðið verður upp á tómatsósu, sinnep, remúlaði og steiktan lauk. Skóla lýkur kl 13.10
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.