• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

30. maí 2018

Íþróttadagur

Á morgun fimmtudaginn 31. maí verður íþróttadagur í Myllubakkaskóla. Þá mæta nemendur klæddir eftir veðri og hafa með sér nesti.
Nemendur mæta í heimastofur og fara síðan með starfsfólki í hina ýmsu hreyfingu.
Um kl. 11:30 mætir BMX-Brós á svæðið í boði foreldrafélagsins og er þá foreldrum velkomið að bætast í hópinn. Kl. 12:15 byrjum við að grilla. Foreldrafélagið býður nemendum upp á pylsur og pylsubrauð og skólinn verður með tómatsósu, sinnep og steiktan lauk. Nemendur koma sjálfir með drykk fyrir grillið.
Um kl. 13:00 er skóla lokið og frístundaskólinn opinn. 

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær