• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

26. maí 2017

Íþróttadagur

Miðvikudaginn 31. maí verður íþróttadagur í Myllubakkaskóla. Þá mæta nemendur klæddir eftir veðri og hafa með sér nesti (drykk líka) sem verður borðað um kl. 9:15.
Nemendur mæta í heimastofur og fara síðan með starfsfólki í hina ýmsu hreyfingu. Um kl. 11:30 mætir sirkus á svæðið í boði foreldrafélagsins og er þá foreldrum velkomið að bætast í hópinn. Kl. 12:15 byrjum við að grilla. Foreldrafélagið býður upp á pylsur og pylsubrauð og skólinn verður með tómatsósu, sinnep og steiktan lauk. Nemendur koma með drykk fyrir grillið. Um kl. 13:00 er skóla lokið og frístundaskólinn opinn.

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær