• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

2. júní 2016

Íþróttadagur

Á morgun föstudag, 3. júní verður íþróttadagur í Myllubakkaskóla. Þá mæta nemendur klæddir eftir veðri og hafa með sér nesti (drykk líka) sem verður borðað um kl. 9:15 og pylsu(r), pylsubrauð og drykk til að gæða sér á í hádeginu þegar verður grillað. 
Þennan dag mæta nemendur í heimastofur og fara síðan með starfsfólki í hina ýmsu hreyfingu. Um kl. 11:45 byrjum við að grilla og er þá foreldrum velkomið að bætast í hópinn. Boðið verður upp á tómatsósu, sinnep og steiktan lauk. Um kl. 12:30 mætir sirkus á svæðið í boði foreldrafélagsins. Eftir sirkusinn er skóla lokið og frístundaskólinn opinn.

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær