Íþróttadagur
Föstudaginn 5. júní verður íþróttadagur hjá okkur í Myllubakkaskóla. Nemendur mæta í heimastofur kl. 8:10 og fara í hina ýmsu leiki þennan dag. Nemendum í 1. - 5. bekk er boðið að grilla pylsur á skólalóðinni kl. 11:30 og 6. - 10. bekk kl. 12:00. Skóla lýkur kl. 13:10.
Nemendur komi klæddir eftir veðri og hafi með sér nesti (sem verður borðað um kl. 9:30) og pylsur og pylsubrauð ásamt drykk fyrir grillið. Við hvetjum foreldra/forráðamenn til að koma í hádeginu og klára daginn með okkur.
Sumarkveðja
starfsfólk Myllubakkaskóla
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.