Glæsilegur árangur í samræmdum könnunarprófum
Nemendur í 4., 7. og 10. bekkjum Myllubakkaskóla stóðu sig ákaflega vel á samræmdum könnunarprófum. Heildarárangur skólans var betri en nokkru sinni áður, en Myllubakkaskóli var yfir landsmeðaltali í 5 af 7 námsgreinum. Námsgreinar sem kannaðar eru í samræmdum prófum eru íslenska og stærðfræði í 4. og 7. bekkjum. Nemendur í 10. bekk taka þar að auki könnunarpróf í ensku. Til hamingju Myllubakkaskóli.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.