• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

15. febrúar 2013

Frábær kvöldskemmtun í Myllubakkaskóla

Það var margt um manninn á kvöldskemmtun nemenda í 10. bekk Myllubakkaskóla í gærkvöld.  Skemmtunin var liður í fjársöfnun nemenda fyrir útskriftarferð þeirra í vor.  Það var einstaklega gaman að fylgjast með fjölbreyttri dagskrá nemenda sem samanstóð af dansi, söng, uppistandi, leik, töfrabrögðum og tónlistaratriðum ásamt því að boðið var upp á glæsilegt hlaðborð í hléi.  Þarna eru svo sannarlega á ferðinni hæfileikaríkir krakkar sem sýndu það og sönnuðu að rík hefð hefur skapast fyrir listir í Myllubakkaskóla.

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær