Fjölskylduhátíð Móðurmáls
Móðurmál, samtök um tvítyngi á Suðurnesjum hafa verið með kennslu á laugardögum nú í vetur fyrir tvítyngd börn. Þau buðu upp á fjölskylduhátíð í sal Myllubakkaskóla sl. laugardag. Á hátíðinni voru tungumálahópar með kennsluefni og bækur til sýnis. Boðið var upp á ýmsa smárétti frá mismunandi löndum og leiki fyrir börnin. Hátíðin heppnaðist vel og kíktu margir í heimsókn.
Fleiri myndir má sjá hér.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.