Fjölmenningarvika og dagur íslenskrar tungu
Vikuna 16. - 20. nóvember verður fjölmenningarvika í Myllubakkaskóla. Þá verður sjónum beint að öllum þeim ólíku þjóðarbrotum sem eru hér innan skólans. Nemendur útbúa þjóðfánann sinn, skoða og vinna með orð og tölur á ýmsum tungumálum og margt fleira. Dagur íslenskrar tungu er 16. nóvember ár hvert og er hefð fyrir því að gera eitthvað í tilefni dagsins. Við munum halda upp á hann á þriðjudeginu þar sem hver árgangur verður með atriði á sal.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.