Dagur stærðfræðinnar
Í dag var mjög skemmtilegt andrúmsloft í skólanum. Nemendur í 8. - 10. bekk mættu spariklæddir og spiluðu félagsvist. Spilað var á 19 borðum og var mikið fjör. Sigurvegarar voru Ægir Þór og Elvar í 10. bekk. Í tilefni af degi stærðfræðinnar var ýmislegt gert til að brjóta upp hefðbundna kennslu. 3. bekkingar voru í ýmiskonar stöðvavinnu og margir bekkir spiluðu á spil, fóru í yatzy eða leiki. Einnig fengu nemendur á yngsta stigi að giska á fjölda kubba sem búið var að setja í stóra skál. Nemendur í 1. bekk voru með 100 daga hátíð. Búið var að setja upp 10 tegundir af ýmsu góðgæti og gengu nemendur á milli og töldu í poka.
![]() |
Hversu margir kubbar eru í skálinni? |
![]() |
1. bekkur |
![]() |
Skemmtilegur leikur |
![]() |
Viðurkenning fyrir félagsvist. |
Sjá má fleiri myndir í myndasafni.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.