Bjarni Fritzson í Reykjanesbæ
FFGÍR og Foreldrafélög Grunnskólanna gefa fræðslu til miðstigs dagana 13. og 14. janúar 2020.
Bjarni Fritzson hefur um áraraðir starfað innan íþróttahreyfingarinnar bæði sjálfur sem iðkandi og svo í seinni tíð unnið með fjöldann allan af börnum.
Bjarni hefur skrifað Orra óstöðvandi bækurnar og byggir sína fyrirlestra, hópefli, sjálfstyrkingu og fræðslu á þeim bókum með gífurlega góðum árangri.
Bjarni mun fara þessa tvo daga í skólanna með sitt prógram og eru kennarar hvattir til að sitja stundina og tilvalið fyrir þá að glósa það sem þeir vilja nota sér í kennslustundum.
Foreldrar fá svo magnaðan fyrirlestur sem ítrekað hefur verið fullsetinn ár eftir ár á Hilton hótel í Reykjavík sem og fleiri stöðum á landinu. Þeir foreldar sem vilja fá með sér handbók heim til að nota og fræðast.
Fyrirlesturinn verður haldinn miðvikudaginn 15. janúar kl 19:30 í Fimleika akademíunni.
Allir foreldrar Reykjanesbæjar eru velkomnir en foreldrar barna í 5. - 7. bekk eru sérstaklega hvattir til að mæta.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.