Árshátíð Myllubakkaskóla
Árshátíð Myllubakkaskóla fer fram föstudaginn 15. mars í íþróttahúsinu við Sunnubraut (Toyotahöllin). Hátíðin sjálf hefst kl. 13:00 og því verða nemendur að mæta kl. 12:45. Æfingar fyrir hátíðina fara fram fyrr um daginn eða sem hér segir:
6. bekkur æfir kl. 10:00
4. bekkur kl. 10:10
10. bekkur kl. 10:20
5. bekkur kl. 10:30
7. bekkur kl. 10:40
9. bekkur kl. 10:50
8. bekkur kl. 11:00.
Foreldrar eru hvattir til að mæta og fylgjast með flottum atriðum, sjón er sögu ríkari. Eftir árshátíðina er nemendum og foreldrum boðið upp á kökusneið og drykk í B - sal íþróttahússins
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.