Árshátíð
Árshátíð Myllubakkaskóla verður haldin föstudaginn 31. mars kl. 13:00 í Íþróttahúsinu við Sunnubraut.
Nemendur mæta kl. 12:45 nema umsjónarkennari hafi nefnt annan tíma. Nemendur í 2.-10. bekk mæta á æfingu um morguninn og hafa umsjónarkennarar látið vita með tímasetningu á hana.
Foreldrar/forráðamenn og aðrir aðstandendur eru hjartanlega velkomin.
Eftir sýningu er boðið upp á kaffi, svala og köku í B-sal íþróttahússins.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.