100 daga hátíð hjá 1. bekk
Í dag héldu nemendur í 1. bekk upp á það að þeir voru búnir að vera í 100 kennsludaga í Myllubakkaskóla. Allir höfðu búið til kórónu til að hafa í tilefni dagsins. Einnig var margt gert sem tengdist tölunni 100 s.s. að hoppa 10 sinnum, snerta tærnar 10 sinnum og svo framvegis þar til 10 tugum var náð = 100. Í lok dags var svo farið í félagsaðstöðuna þar sem börnin bjuggu til töluna 100 með því að setjast á gólfið. Að lokum fengu nemendur svo að telja 100 "nammi" í poka t.d. 10 cheerios, 10 rúsinur o.s. frv. Hátíðin tókst mjög vel og allir skemmtu sér vel.
Í myndasafni má sjá fleiri myndir og myndbönd.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.