• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

20. ágúst 2021

Skólasetning 23. ágúst

Nemendur í 2.- 10. bekk eiga að mæta á skólasetningu mánudaginn 23. ágúst klukkan 9:00 til umsjónarkennara í heimastofu, umsjónarkennarar senda tölvupóst með nánari upplýsingum. Þann 24. ágúst hefst hefðbundið skólastarf og nemendur mæta samkvæmt stundatöflu.

Foreldrar nemenda sem eru að hefja skólagöngu í 1. bekk eiga að hafa fengið bréf frá skólanum með tímasetningu viðtals við umsjónarkennara en skólasetning verður fyrir 1. bekk þriðjudaginn 24. ágúst klukkan 8:15 á sal skólans þar sem foreldrar eru hvattir til að mæta með barni sínu. Í kjölfarið hefst fyrsti skóladagurinn hjá þeim.

Í ljósi aðstæðna erum við enn að gæta ítrustu varkárni í sóttvörnum og eru foreldrar beðnir um að koma ekki inn í skólann nema erindið sé brýnt. Einnig biðjum við ykkur um að senda barnið ykkar ekki í skólann ef það er með einkenni flensu.

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær