• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

Nemendafélag

Í Myllubakkaskóla er starfandi nemendafélag og er stjórnin skipuð nemendum úr 8.-10. bekk. Stjórn nemendafélagsins starfar í þágu nemenda og því er mikilvægt að þeir sem taka að sér embætti í stjórn nemendafélagsins séu meðvitaðir um það hlutverk og þær skyldur sem þeir gegna. Nemendur velja sjálfir að vera í stjórn nemendafélagsins. Í byrjun skólaárs er kosinn formaður, varaformaður og ritari. Einnig er kosið í Ungmennaráð Reykjanesbæjar og Skólaráð Myllubakkaskóla.

Hlutverk
Hlutverk stjórnar nemendafélagsins er að efla félagslegan áhuga nemenda, skipuleggja og hafa yfirumsjón með félagslífi nemenda sem og standa vörð um hagsmuni og velferð nemenda skólans. Fulltrúi úr stjórninni er áheyrnarfulltrúi í skólaráði. Einnig situr einn fulltrúi í Ungmennaráði Reykjanesbæjar.

Nemendur sem skipa stjórn nemendafélagsins skulu vera til fyrirmyndar bæði innan sem utan skólans, hafa góða skólasókn og sinna námi sínu af bestu getu. Þeir nemendur sem neyta áfengis, vímuefna eða tóbaks geta ekki verið meðlimir í stjórninni.

Fulltrúar stjórnar nemendafélags Myllubakkaskóla 2025-2026 eru:
Formaður: Joris Milleris í 10.IR
Varaformaður: Unnur Birta Jónsdóttir í 9.LS
Ritari: Ástrós Kristinsdóttir í 8.HH

Fulltrúar í Skólaráði Myllubakkaskóla: Jónatan Axel Þórðarson 10.VV og Bryndís Ólína Skúladóttir í 9.LS
Fulltrúi í Ungmennaráði Reykjanesbæjar: Bryndís Ólína Skúladóttir í 9.LS

Umsjónarmenn með félagsstörfum í Myllubakkaskóla eru Halla Karen Guðjónsdóttir og Marín Hrund Jónsdóttir

Reglur
Fulltrúar í stjórn nemendafélagsins

  • skulu vinna að hagsmuna- og velferðamálum allra nemenda
  • vera talsmenn nemenda og koma hugmyndum þeirrra og ábendingum á framfæri
  • bera upp erindi til umfjöllunar á fundum stjórnar
  • hvetja aðra nemendur til þátttöku í félagsstarfi skólans með jákvæðu umtali
  • mæta á nemendafélagsfundi og taka virkan þátt í umræðum og verkefnum á fundum
  • koma að undirbúningi og útfærslu fjölbreyttra viðburða og hjálpa til við frágang að viðburðum loknum
  • starfa undir leiðssögn umsjónarmanna félagsstarfa
  • eru fyrirmyndir fyrir aðra nemendur skólans og þurfa að fara í einu og öllu eftir reglum skólans

Verði nemandi í stjórn nemendafélags uppvís af því að brjóta alvarlega gegn reglum skólans eða sýni af sér hegðun sem stríðir gegn þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra þá geta þeir átt hættu á því að vera vísað úr stjórn nemendafélagsins. Hvert mál er skoðað sérstaklega.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær