PBS - stuðningur við jákvæða hegðun

Skólaárið 2006-2007 var stofnað þverfaglegt teymi til að undirbúa og innleiða nýjar umgengnisreglur í skólastarfi. Töluvert hefur verið um mannabreytingar í teyminu, fólk hefur ýmist tekið sig til og fjölgað mannkyninu eða horfið til annarrar vinnu. Teymið hefur fundað aðra hverja viku eða oftar frá því á síðasta skólaári, sótt námskeið og kynningarfundi til Reykjavíkur og haldið kynningarfundi fyrir annað starfsfólk skólans, nemendur og foreldra, skipt skólanum í 12 svæði, sett fram væntingar um hegðun fyrir hvert þeirra, útbúið leiðbeiningar um kennslu hegðunar og gert tillögur að viðurkenningum. Reglurnar byggja á heildstæðum stuðningi við jákvæða hegðun (PBS –Positive Behavior Support) og byggir á kenningum í atferlisfræði.

Áhersla er lögð á að skilgreina, kenna og styðja við æskilega hegðun. Með einföldum og skýrum reglum er reynt að leiðbeina nemendum og koma í veg fyrir hegðunarvanda. Allt starfsfólk skólans þekkir reglurnar og þar af leiðandi næst samræmi í aðgerðum.

Umbunað er fyrir jákvæða hegðun og beinist umbununin að bekkjardeildum. Notað er lýsandi hrós og bent á það sem vel er gert en það leiðrétt sem miður fer. Nálgunin beinist að skólanum í heild ekki síður en einstaka nemendum bæði í mati og fyrirbyggjandi aðgerðum. Viðmið fyrir umbun er 20 býti x nemendafjöldi. Aðal atriði þessara aðferða er að hegðunin er kennanleg, kennslan beinist að öllum nemendum skólans og allt starfsfólk leiðbeinir.

Markmiðið er að ná fram meiri árangri í námi og kennslu og aukinni félagsfærni. Skólanum og þeim svæðum sem skólastarf nær yfir er skipt í: Frístund, ganga og anddyri, matsal, snyrtingu, kennslurými, skólalóð, íþróttaaðstöðu, bókasafn, tölvu- og netnotkun, ferðir, samkomur og skemmtanir og síðast en ekki síst yfir og allt um kring.
Umgengnisvæntingar eru settar fram samkvæmt einkunnarorðum skólans sem eru:

VIRÐING – ÁBYRGÐ – JAFNRÉTTI - ÁRANGUR.

Viðburðadagatal

« febrúar 2012 »
M Þ M F F L S
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
272829    
       
Mentor Reykjanesbær