Í næstu viku verður haldin listavika í Myllubakkaskóla. Þá verður skólinn iðandi af lífi og fjöri og margt skemmtilegt í boði. Þátttakendur í listavikunni eru nemendur, foreldrar og starfsfólk skólans. Markmiðið með þessum viðburði er að gleðjast, brosa og gefa lífinu lit í svartasta skammdeginu. Kennarar munu brjóta upp skólastarfið þessa viku og vinna með alls kyns skemmtileg verkefni. Eftir skóla bjóðum við svo upp á hinar ýmsu listasmiðjur. Það er engin kvöð að taka þátt en ALLIR nemendur og ALLIR foreldrar eru hjartanlega velkomnir. Það kostar 200 kr. í hverja smiðju. Þannig náum við að greiða efni, áhöld og annað sem við þurfum að nota í smiðjunum. Leiðbeinendur í smiðjum eru starfsmenn skólans og foreldrar sem vinna í sjálfboðavinnu. Það eru allir búnir að leggja sig mikið fram við að undirbúa skemmtilegar smiðjur og það er ákaflega ánægjulegt að geta boðið upp á svona glæsilega dagskrá. Við í Myllubakkaskóla erum stolt af því að geta boðið ykkur að taka þátt í listavikunni með okkur. Við vonum að þið kunnið að meta það.
Höfum gaman saman,
gefum sköpunarþörfinni lausann tauminn
og njótum lífsins!!
SKRÁNING ER Á SAL SKÓLANS FÖSTUDAGINN 5. FEBRÚAR KL. 13.15.
Fyrstur kemur - fyrstur fær!!!!
Nemendur fengu bækling með sér heim í dag. Í honum eru allar upplýsingar um hvað er í boði.
Bæklinginn má nálgast hér.