Miðvikudaginn 20. janúar komu Kristján lögreglumaður og Hafþór frá 88húsinu og fræddu nemendur í 6., 8. og 10. bekk og foreldra þeirra um ábyrga netnotkun. Þeir sögðu nemendum frá jákvæðum og neikvæðum atriðum tengd netinu og báðu nemendur m.a. að fara varlega og ekki að mynda nein tengsl við ókunnuga á netinu.
Ekki var mikil mæting hjá foreldrum á þessa fyrirlestra sem er miður því meirihluti barna í dag eyðir miklum tíma á netinu.