• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

20. maí 2022

Úrslit Mylluvísjón 2022

Föstudaginn 13. maí var Mylluvísjón, söngkeppni nemenda Myllubakkaskóla, haldin fyrir húsfylli í Frumleikhúsinu. Það var mikið gleðiefni að geta aftur boðið upp á þennan viðburð og við erum Leikfélagi Keflavíkur afar þakklát fyrir lánið á leikhúsinu þeirra frábæra. Keppnin var algjörlega glæsileg, stútfull af hæfileikaríkum og hugrökkum nemendum sem glöddu áhorfendur. Keppendur þetta árið voru alls 33 í 26 atriðum. Eins og áður var keppt í tveimur flokkum, yngri flokki 3. – 6. bekkja og eldri flokki 7. – 10. bekkja. Sigurvegari í eldri flokki var Aðalbjörg Ósk í 8. bekk, í öðru sæti var Adam Bjarki í 7. bekk og þriðja sætinu deildu Brynhildur Þöll og Kristín Svala í 7. bekk. Í yngri flokki sigraði Heiðdís í 3. bekk, í öðru sæti var Halla Björk í 3. bekk og í því þriðja var Andrea Ísold í 5. bekk. Við óskum sigurvegurunum innilega til hamingju með sinn flutning og árangur. Við viljum líka þakka öllum nemendunum sem tóku þátt. Það þarf mikið hugrekki til að stíga á svið og syngja fyrir hóp af fólki og það sannaðist þarna enn og aftur að Myllubakkaskóli er fullur af hæfileikaríkum nemendum og framtíðin björt.

Bryndhildur Þöll, Kristín Svala, Adam Bjarki og Aðalbjörg Ósk.

Heiðdís, Halla Björg og Andrea Ísold

Fleiri myndir frá keppninni má sjá hér.

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær