• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

12. mars 2020

Stærðfræðikeppni grunnskólanna

Stærðfræðikeppni grunnskólanema fór fram í Fjölbrautaskóla Suðurnesja 27. febrúar s.l. Þátttakendur voru 112 nemendur í 8. - 10. bekk úr öllum grunnskólum á Suðurnesjum. Verðlaunaafhending fór fram á sal skólans 11. mars s.l. Þar mættu 10 efstu í hverjum árgangi ásamt foreldrum, stærðfræðikennurum og stjórnendum grunnskólanna. Allir sem voru boðaðir fengu viðurkenningarskjal.

Það voru 9 keppendur í tíu efstu sætunum sem komu frá Myllubakkaskóla.

Í 10. bekk var Hjörtur Máni Skúlason í 1. sæti, Klaudia Kuleszewicz í 3. sæti, Guðjón Steinn Skúlason í 4. sæti, Gabriela Beben í 5. sæti og Friðrik Ingi Hilmarsson í 6.-11. sæti.
Í 9. bekk var Agata Hirsz í 4. - 5. sæti, Leó Máni Quyen Nguyén og Rugilé Milleryte í 6. - 10. sæti.
Í 8. bekk var Birgir Logi Birgisson í 6. - 10. sæti.

Við óskum þeim öllum til hamingju með árangurinn.
Frétt og fleiri myndir má sjá á heimasíðu Fjölbrautaskóla Suðurnesja.

Aftari röð fv: Birgir Logi, Agata, Rugilé og Friðrik Ingi
Fremri röð fv: Gabriela, Klaudia, Hjörtur Máni og Leó Máni
Á myndina vantar Guðjón Stein

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær