• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

9. desember 2019

Slæmt veður á morgun og miðvikudag

Slæmt veður á morgun og miðvikudag

Veðurstofan hefur gefið út viðvörun vegna slæmrar veðurspár fyrir þriðjudag og miðvikudag. Við viljum beina því til foreldra/forráðamanna að huga að veðrinu áður en þeir senda börnin í skólann í fyrramálið og enn frekar þegar skóladeginum lýkur og koma þá að sækja börnin ef þarf. En á morgun eftir hádegi á veðrið að vera slæmt hér á svæðinu. Eins og ég hef nefnt áður þá komum við til með að loka aðalanddyri skólans ef mikið rok er úti og við teljum hættu stafa af hurðinni. Þá beinum við nemendum að inngangi við Suðurtún.

Þegar veðurspár gefa til kynna að óveður sé í aðsigi á Suðurnesjum fylgjast Lögreglan og Almannavarnir gaumgæfilega með, hafa samstarf við skólana og gefa út viðvaranir til almennings, gerist þess þörf.

Mikilvægt er að foreldrar sjálfir fylgist með veðri og veðurspám og hagi sér í samræmi við aðstæður hverju sinni.

Foreldrar leggja sjálfir mat á hvort fylgja þarf barni í og úr skóla þótt engin tilkynning hafi borist frá yfirvöldum. Meti foreldrar aðstæður svo að ekki sé óhætt að börn þeirra sæki skóla þá skulu þeir tilkynna skólanum um það og lítur skólinn á slík tilvik sem eðlileg forföll.

Við slíkar aðstæður eru skólarnir opnir og þar er öruggt skjól fyrir börnin.

www.vedur.is

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær