Saga Myllubakkaskóla
Saga Myllubakkaskóla eða Barnaskólans í Keflavík, eins og hann hét fyrstu árin, nær allt aftur til ársins 1897. Fyrstu árin var skólinn til húsa að Íshússtíg 3 en fluttist síðan á Skólaveg þegar byggingu hússins lauk 1911. Það hús var lengi notað fyrir kennslu 6 ára nemenda. Í dag er Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum starfrækt þar.
Árið 1948 var hafist handa við byggingu skólans á núverandi stað við Sólvallagötuna og var húsið vígt og tekið í notkun þann 17.febrúar 1952. Árin 1952-1954 fékk Gagnfræðiskóli Keflavíkur, þá nýstofnaður að vera í húsinu eða þar til hann var fluttur í gamla skólahúsið við Skólaveg. Íþróttahús skólans var tekið í notkun 1958. Þá var Iðnskóli Suðurnesja starfræktur, sem kvöldskóli, í húsinu til 1970.
Vegna mikillar fólksfjölgunar þurfti að byggja við skólann og var nýbyggingin tekin í notkun 1967 auk þess sem yngstu bekkirnir fóru aftur upp á Skólaveg þegar Gagnfræðiskólinn flutti á Sunnubrautina 1962. 1970 þegar farið var að kenna 6 ára börnum fór sú kennsla fyrstu árin fram í húsi Sjöundadags Aðventista við Blikabraut. Árið 1973 varð aftur aukning nemenda vegna gossins í Vestmannaeyjum og var þá brugðið á það ráð að kaupa þrjár lausar kennslustofur, svonefnda „kálfa“, og koma þeim fyrir við skólann.
Með lögum um grunnskóla 1974 verða barna- og gagnfræðiskólar einn grunnskóli (1.-10.bekkur). Í framhaldi af því fengu skólarnir nöfnin Myllubakkaskóli og Holtaskóla að undangenginni hugmyndasamkeppni hjá nemendum og kennurum.
Árið 1975 fór fram mikil vinna til undirbúnings byggingu nýs skóla í Keflavíkur en ekkert varð úr þeim framkvæmdum. 1978 varð mikil breyting á skólastarfi þegar 7.bekkur var fluttur í Holtaskóla og eingöngu kennt 1.bekk í húsinu við Skólaveg.
Kennsla yngstu barna fluttist þaðan haustið 2000. 1984 var sérdeild stofnsett við skólann.
1987 var tekið til við að byggja við Myllubakkaskóla og var sú bygging tekin í notkun 1988. Árið 1998 var hafist handa við að byggja Heiðarskóla og haustið 1999 er 1.-10.bekk skipt niður á skólana þrjá í Keflavík. Sumarið 1999 var hafist handa við að stækka Myllubakkaskóla til að hægt sé að einsetja hann.
Skólinn varð einsetinn haustið 2000.
Skólastjórar Myllubakkaskóla (Barnaskólans)
| 1946-1972 | Hermann Eiríksson | |
| 1972-1973 | Ólafur Jónsson | |
| 1973-1974 | Hermann Eiríksson | |
| 1974-1978 | Ólafur Jónsson | |
| 1978-1986 | Vilhjálmur Ketilsson | |
| 1986-1988 | Kristján A. Jónsson | |
| 1988-2003 | Vilhjálmur Ketilsson | |
| 2003-2004 | Sigurður Þ. Ingimundarson og Brynja Árnadóttir | |
| 2004- | Brynja Árnadóttir |
Nemendafjöldi árin 1949-1999
| Ár | Aldurshópur | Fjöldi | |||
| 1949 | 7-14 ára | 238 | |||
| 1959 | 7-12 ára | 605 | |||
| 1969 | 7-12 ára | 885 | |||
| 1973 | 6 -12 ára | 1100 | |||
| 1979 | 6 -11 ára | 730 | |||
| 1989 | 6 -11 ára | 787 | |||
| 1999 | 6 - 15 ára | 393 |
Unnið upp úr grein eftir Þórdísi Þormóðsdóttur sem birtist 1987 í 6.tbl. 47.árg. Faxa





