Kastalinn (Frístundaskóli Myllubakkaskóla)

Umsjónarmaður er Guðný Andrésdóttir
Símar: 420-1456, 616 0025
Netfang: gudny.andresdottir@myllubakkaskoli.is

Frístundaskólinn sem er fyrir nemendur í 1.-4. bekk starfar frá kl. 13:10-16:00 á starfstíma skóla. Boðið er upp á síðdegishressingu alla daga. Frístundaskólinn starfar ekki á starfsdögum.  Lokað er í vetrarfríi,  jóla- og páskafríum nemenda.

Boðið er upp á hreyfistundir í skólanum 2 - 3 sinnum í viku og aðstoð við heimanám eins og kostur er. Æfingagjald er ekki lengur innifalið í greiðslu foreldra, akstur á æfingar fellur niður og einnig íþróttaskóli fyrir 1. bekkinga.

Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu skólans. Sótt er um fyrir hvert skólaár í senn. Ef vistunartíma er breytt skal gera það fyrir 15. hvers mánaðar. Segja verður upp vist í frístundaskóla með tveggja vikna fyrirvara. Ef það kemur fyrir að nemandi á ekki að fara í frístund eftir skóla þá er nauðsynlegt að tilkynna það.

Kostnaður og innheimta. Gjaldkeri bæjarskrifstofu Reykjanesbæjar sér um innheimtu gjalda fyrir frístundaskólann. Kostnaður foreldra er 14.800 krónur á mánuði miðað við fullt gjald með síðdegishressingu. Ef foreldrar vilja kaupa staka tíma þá er tímagjaldið 325 krónur (selt í 20 eininga kortum) og síðdegishressing 125 kr. pr. dag.


Viðburðadagatal

« febrúar 2012 »
M Þ M F F L S
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
272829    
       
Mentor Reykjanesbær