Frístundaskóli Myllubakkaskóla

Umsjónarmaður er Margrét Óskarsdóttir
Símar: 420-1456, 864-6785
Netfang:  margret.oskarsdottir@myllubakkaskoli.is

Frístundaskólinn sem er fyrir nemendur í 1.-4. bekk starfar frá kl. 13:10-16:00 á starfstíma skóla. Boðið er upp á síðdegishressingu alla daga. Frístundaskólinn starfar ekki á starfsdögum.  Lokað er í vetrarfríi,  jóla- og páskafríum nemenda.

Boðið er upp á hreyfistundir í skólanum 2 - 3 sinnum í viku og aðstoð við heimanám eins og kostur er. Æfingagjald er ekki lengur innifalið í greiðslu foreldra, akstur á æfingar fellur niður og einnig íþróttaskóli fyrir 1. bekkinga.

Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu skólans. Sótt er um fyrir hvert skólaár í senn. Ef vistunartíma er breytt skal gera það fyrir 15. hvers mánaðar. Segja verður upp vist í frístundaskóla með tveggja vikna fyrirvara. Ef það kemur fyrir að nemandi á ekki að fara í frístund eftir skóla þá er nauðsynlegt að tilkynna það.

Kostnaður og innheimta. Gjaldkeri bæjarskrifstofu Reykjanesbæjar sér um innheimtu gjalda fyrir frístundaskólann. Kostnaður foreldra er 14.400 krónur á mánuði miðað við fullt gjald með síðdegishressingu. Ef foreldrar vilja kaupa staka tíma þá er tímagjaldið 315 krónur (selt í 20 eininga kortum) og síðdegishressing 105 kr. pr. dag.

Viðburðadagatal

« mars 2010 »
M Þ M F F L S
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031    
       

Framundan:

Mentor Reykjanesbær