Móttaka innflytjenda í Myllubakkaskóla


Gátlisti

1. Forvinna skólans fyrir móttökuviðtal

• Umsjónarkennari valinn.
• Ákveðið hver á að sjá um leiðsögn um skólann fyrir nemandann og foreldra hans.
• Túlkur pantaður ef þörf er á.
• Umsjónarkennari og starfsmaður fjölþjóðadeildar boðaðir í móttökuviðtalið.
• Innritunarblað á móðurmáli nemandans tekið til.
• Ítarlegri upplýsingar um skipulag móttöku og hlutverk túlka er að finna í
handbók Reykjanesbæjar.

2. Móttökuviðtal

• Farið yfir innritunarblað og upplýsinga aflað um nemandann.

Óskað er eftir að nemandi hafi:

Dvalarleyfi
Kennitölu
Tryggingar
Heilbrigðisvottorð
Gögn frá fyrri skóla

Kynna þarf:
• Starfsemi skólans og það sem skólinn býður upp á, s.s. mötuneyti,
lengd viðvera, félagsstarfsemi skólareglur o.fl.
• Samstarf heimilis og skóla, s.s. fundir, tölvupóstur, Mentor, samskiptabók,
foreldrafélag o.fl.
• Nauðsynleg símanúmer í skólanum og upplýsingar um viðtalstíma og
netföng kennara.
• Næring og heilsa, s.s. nesti, ofnæmi, íþróttaföt, sundföt o.fl.
• Hvernig á að tilkynna forföll og biðja um frí.
• Hvert á að snúa sér ef vandamál koma upp
• Fjölþjóðadeild.
• Leiðsögn um skólann.
• Fyrsti skóladagur staðfestur og næsti fundur ákveðinn.


3. Fyrstu skóladagarnir


• Fyrstu vikurnar sækir nemandi tíma í fjölþjóðadeild alla daga frá 8:10-11:10 en
eftir hádegi fylgir hann bekknum.
Að því loknu er staða nemandans í íslensku könnuð og og tímafjöldi
íslenskukennslu í fjölþjóðadeild ákveðinn samkvæmt því.

• Umsjónarkennari undirbýr bekkinn og myndar vinateymi. Gott er að merkja hluti í
skólastofunni og brýna fyrir nemendum að tala íslensku.

• Umsjónarkennari heldur utan um nám nemandans og fylgist með framförum
hans. Aðrir kennarar miðli upplýsingum til umsjónarkennara.

• Umsjónarkennari annast samskipti við foreldra nema annað sé ákveðið.

• Stöðumat framkvæmt í fjölþjóðadeild þegar skilningur er kominn.

• Námið þarf að vera markvisst, sjá Aðalnámskrá grunnskóla – Íslenska sem annað
tungumál og gera þarf einstaklingsáætlun í fjölþjóðadeild sem byggð er á
stöðumatinu.

• Námsefni við hæfi er hægt að nálgast í fjölþjóðadeild.


4. Áframhaldandi samstarf við nemanda og foreldra

• Stöðufundur með nemanda og foreldrum er tímabær eftir 6 -8 vikur. Túlkur
boðaður ef með þarf. Markmiðið er að rifja upp það sem áður hefur komið fram
og kynna námsgögn nemandans.

• Mikilvægt er að stuðla að góðu sambandi milli heimilis og skóla.


Reykjanesbær maí 2010

Stefanía María Júlíusdóttir
Elísabet Jensdóttir
Ásta Arnmundsdóttir

Viðburðadagatal

« febrúar 2012 »
M Þ M F F L S
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
272829    
       
Mentor Reykjanesbær