Yfirmarkmið
Við Myllubakkaskóla er starfrækt fjölþjóðadeild þar sem eingöngu fer fram kennsla barna með annað móðurmál en íslensku. Þetta getur átt við börn af erlendum uppruna eða íslensk börn sem flutt hafa til Íslands eftir langa dvöl á erlendri grund. Nemendur eru í 1.-10. bekk. Þeir tilheyra allir almennum bekk og hafa sinn umsjónarkennara.
Í Aðalnámskrá grunnskóla segir m.a.:
“Tilgangurinn með kennslu í íslensku sem öðru tungumáli er að nemendur verði hæfir til að taka fullan þátt í íslensku samfélagi sem tvítyngdir einstaklingar með rætur og innsæi í tvo menningarheima og auðgi með því íslenskt mannlíf.
Markmið kennslunnar fela í sér að íslenska sem annað tungumál sé lykill að íslensku skólastarfi, íslensku samfélagi, virku tvítyngi og tveimur menningarheimum.
Í þessu kemur skýrt fram að íslenska sem annað tungumál er meira en tungumálakennsla. Þar fer saman að leitast er við að kenna börnum menningarfærni, þróa þekkingargrunn, örva námsgetu og stuðla að vellíðan nemenda um leið og íslenskunámið fer fram. Þannig er deildinni ætlað að aðstoða nemendur við að aðlagast nýjum háttum, siðum og nýju skólakerfi og halda í gildi menningu heimalandsins.

Markmið
Að nemendur:
-verði færir um að skilja og nota íslenskt mál, geti stundað nám í íslenskum skólum og fái nægilega þekkingu í námsgreinunum til að geta fylgt jafnöldrum í námi
-geti tjáð skoðanir sínar, hugmyndir og tilfinningar á skýru, töluðu og rituðu máli og geti skilið skoðanir annarra á sama hátt
-geti tekið þátt í íslensku félags-og menningarlífi

Námsmarkmið á fyrsta ári
Að nemandi læri orð og hugtök yfir:
skólann, skólaumhverfið og námsgreinarnar
heimilið og fjölskylduna
líkamann
mat
fatnað
umhverfi og veður
íslenska stafrófið
liti
daga og mánuði
geti tjáð sig og myndað einfaldar setningar
verði læs á íslensku og þjálfist í lesskilningi
auki orðaforða sinn jafnt og þétt
bæti framburð sinn

Námsmarkmið á öðru ári
Að nemandi:
auki orðaforða sinn
geti myndað flóknari setningar
bæti lesskilning
bæti framburð
þjálfist í ritun

Námsmarkmið á þriðja, fjórða og fimmta ári
Að nemandi bæti stöðugt við þekkingu sína í íslensku og læri sögu Íslands og landafræði.
Skipulag deildarinnar og kennsluhættir
Stundaskrá er útbúin fyrir hvern og einn nemenda. Nemandi fylgir sínum bekk eins og kostur er. Nemendur í 1.-4. bekk fá tvo til fimm tíma á viku eftir þörfum hvers og eins. Nemendur 5. - 10. bekkjar geta stundað nám í nýbúadeildinni þegar bekkurinn þeirra er í náttúrufræði, samfélagsfræði, dönsku og íslensku. Sumir nemendur kjósa að reynd að læra dönsku með bekknum sínum.
Nemendur koma í deildina samkvæmt þeirra eigin stundaskrá þ.e. þegar bekkurinn þeirra er í ofantöldum fögum.
Í deildinni er lögð áhersla á íslenskunám samkvæmt námsmarkmiðum deildarinnar. Til þess að þjálfa menningarfærni er íslenska kennd í gegnum önnur fög eins og sögu Íslands og landafræði.
Hver og einn vinnur á sínum hraða og með sínum forsendum. Hvert barn á skúffu þar sem námsgögn þess eru geymd frá degi til dags. Nemendur á mið-og elsta stigi fá heimavinnu í íslensku.
Eftir því sem nemendur öðlast meiri færni í íslensku, sækja þeir fleiri bóklega tíma í almennum bekk. Eftir að nemendur útskrifast úr deildinni hafa þeir samt athvarf þar t.d. þegar jafnaldrar þeirra eru í dönsku. Þeir tímar eru nýttir til lestrar á þeirra eigin móðurmáli, ef kostur er, annars er tíminn nýttur í íslensku og/eða heimavinnu.

Einstaklingsáætlun og upplýsingar um nemendur

Deildarstjóri og kennari fjölþjóðadeildar útbúa stundatöflu fyrir hvern og einn nemanda í samráði við umsjónarkennara.
Deildarstjóri og kennari geyma í möppu allar upplýsingar um nemendurna og námsframvindu.

Foreldrasamstarf

Tvisvar á vetri koma foreldrar/forráðamenn nemenda í viðtal við umsjónarkennara og deildarstjóra fjölþjóðadeildar þar sem túlkur er hafður með til þess að allar upplýsingar komist örugglega til skila.

Viðburðadagatal

« september 2010 »
M Þ M F F L S
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
27282930   
       
Mentor Reykjanesbær