- Forsíða
- Fjölþjóðadeild
Fjölþjóðadeild
fyrir nemendur með íslensku sem annað mál
Nemendur með annað móðurmál en íslensku hafa ólíkan menningarlegan, mállegan og námslegan bakgrunn. Þessir nemendur hafa því misjafnar forsendur til að takast á við nám í íslenskum skólum. Kennsla í íslensku sem öðru tungumáli þarf að taka mið af stöðu nemenda í námi. Viðfangsefni íslenskukennslunnar eru samræmd og samhæfð öllum námsgreinum. Tvítyngi hefur jákvæð áhrif á vitsmunaþroska þegar báðum tungumálunum er viðhaldið. Börn, sem alast upp við tvö tungumál samtímis eða læra nýtt tungumál á grunnskólaaldri og viðhalda jafnframt móðurmálinu, lestri, ritun, tali o.s.frv., eru vel í stakk búin til að takast á við nám á hvoru máli fyrir sig.
Kennarar við deildina eru Stefanía María Júlíusdóttir og Svana A. Daðadóttir
Viðburðadagatal
Framundan:
- 03. feb.: Hæfileikakeppni Frístundaskólans
- 03. feb.: Dagur stærðfræðinnar
- 14. feb.: Valentínusarball
- 15. feb.: Gettu betur
- 15. feb.: Þemadagur
- 16. feb.: Þemadagur
- 16. feb.: Diskótek í Holtaskóla
- 17. feb.: Opinn dagur
- 22. feb.: Öskudagur-skertur dagur
- 22. feb.: Öskudagsball
- 28. feb.: Körfuboltamót stúlkna




